Andlaus að mestu .

Ég er voðalega andlaus eitthvað þessa dagana eða kannski ætti ég frekar að segja að ég á í vandræðum við að koma hugsunum mínum í farveg ....fór reynar í smá tilfinningalegan rússibana en vil meina að ég sé kominn niður á jafnsléttu aftur .....

Álpaðist til að særa manneskju um daginn og er enn fúll út í sjálfan mig fyrir það .

Veit reyndar að sú hin sama er það yndæl manneskja að hún fyrirgefur mér fyrir rest .

Er reyndar líka búinn að vera mikið að spjalla við vinkonu mína um allt mögulegt  og margt af því sem hefur verið rætt hefur vakið mig til umhugsunar um mannlegt eðli, vonir okkar og þrár .

Annars er ég bara afskaplega góður og sáttur við tilveruna ,styttist í helgina sem er vel bókuð ,bakstur og leikhús á föstudag , fjall og útskrift á laugardag  en sunnudagurinn er alveg óbókaður ennþá !!!

Finn mér eitthvað að gera ef ég þekki mig rétt :)  Í versta falli hangi ég á Facebook :)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband